Þrumur og eldingar
Það var eins og mig grunaði að ég myndi ekkert blogga eftir að tímarnir byrjuðu. Titillinn vísar að sjálfsögðu til veðursins úti en hérna höfum við grenjandi rigningu, þrumur og eldingar. Best að koma á framfæri nokkrum upplýsingum. Heimilisfangið mitt er
618 Ploy Street, Baltimore MD 21201, USA.
og ég er kominn með gemsa sem hefur númerið 443-326-1297.
Annars er bara allt í góðum gír hérna -- ég er að skemmta mér gríðar vel í anatómíu-kúrsinum mínum, íbúðin er kúl og meðleigendurnir líka. Vorum með HÖRKU partý á föstudaginn -- tequila, margarítur, corona - semsagt svoldið mexíkósk stemning. Partýið hélt áfram fram eftir nóttu enda voru gestirnir svo almennilegir að fara út í búð annað slagið og kaupa meira tequila og bjór svo gleðin gæti haldið áfram.
Að sjálfsögðu fór laugardagurinn því í sjónvarpsgláp. Sá meðal annars hinar stórskemmtilegu SciFi myndir Octopus 1 og Octopus 2... það er nebblega ekki svo auðvelt að finna gott sjónvarpsefni hérna enda þarf maður að fletta milli 200+ stöðva sem innihalda margan sorann.. Sunnudagurinn fór svo í snilldarferð til Washington að hitt Guðrúnu frænku og fleiri íslendinga.
Þessi kúrs sem ég er að taka byrjaði síðan á mánudaginn. Hann heitir Introduction to Biomedical Sciences og er algjör brjálæðiskúrs enda eru dagarnir hjá mér svona: vakna kl. 6:15 og les til 8:15, tímar milli 9 og 5, borða, les milli 7 og 11, sofa.
Allright.. later..
