web page hit counter

Wednesday, September 08, 2004

Bloggari dauðans

Hmmm.. ég hef greinilega ekki það sem þarf til að halda úti svona bloggi.

Jæja, ýmislegt hefur nú gerst undanfarið. Ég kláraði kúrsinn minn og er byrjaður í venjulega prógramminu. Kúrsarnir sem ég tek eru:

Methods of Biostatistics
Principles of Epidemiology
Introduction to Probability
Etiology, Prevention and Control of Cancer

og svo er ég að spá í að fylgjast með

Epidemiology and Public Health Impact of HIV and AIDS

án þess að taka prófið.

Svo er ég kominn með nýtt email, sgunnste hjá jhsph.edu, og meiraðsegja official heimasíðu.

Annars fór ég til NY um helgina. Var með local með mér þannig að við fórum á marga snilldar staði -- borðuðum í india-town, china-town og tókum kareoke í korea-town -- sleppti eiginlega öllu túristastússi, sem er bara gott mál.. sé þessa styttu einhverntíman seinna.

--