web page hit counter

Monday, May 30, 2005

Þessa dagana

Lítið að gerast þessa dagana. Lauren og Keri eru fluttar út og í staðin koma Devaki sem verður hérna næsta vetur og Justin sem er bara í tvo mánuði í sumar. Devaki er að gera Ph.D. í Health Policy and Management. Justin er ekkert að slóra heldur, hann er hérna í sumar að vinna hjá Venture Capital fyrirtæki en á veturna er hann í skóla. Tveimur skólum reyndar, hann er að útskrifast úr lögfræði í Harvard í vor og klárar læknisfræði í Duke næsta vor!! Almennilegt það.

Nú tel ég 10 daga eftir. Styttist í sumar og sælu.

Friday, May 27, 2005

Comps marathon

Nú er klukkan hálf níu á föstudagskvöldi og ég er ennþá niðrí skóla. Ætla að reyna að halda það út hérna til hálf ellefu og fara svo heim í partý sem byrjaði fyrir hálftíma síðan (já heima hjá mér). Hversu lame er ég.

Annar möguleiki í ferðamálum er að taka ódýra pakkann á ágúst til að geta farið til Indlands í Desember/Janúar því þá myndi ég fara með vinum mínum hérna sem eru inside í elítunni á Indlandi. Væntanlega skemmtilegra en að vera þarna einn eitthvað að týnast. "Ódýri" pakkinn væri til dæmis að heimsækja vini í Evrópu:

Reykjavik -> Dublin -> London -> Amsterdam -> Washington DC

fyrir 70þ kall skv. bootsnall.com.

Tuesday, May 24, 2005

Barbararnir

Var að klára að horfa á The Barbarian Invasions (eða Les Invasions Barbares). Þetta er Kanadísk mynd á frönsku um mann sem er að deyja og á erfitt með að gera upp lífið og sætta sig við dauðann. Alveg brillíant mynd að mínu mati, mæli hiklaust með henni.

Sunday, May 22, 2005

Chill helgi

Skellti mér í bíó í gær á Palindromes, nýjustu mynd Todd Solondz sem meðal annars gerði þá umtöluðu mynd Happiness. Ég fílaði sótsvartann húmorinn en eins og Happiness hafa væntanlega ekki allir smekk fyrir henni.

Á föstudaginn fór ég með 200 manns úr skólanum í búskrús (þ.e. fengum eina dolluna í höfninni til að sigla með okkur nokkra hringi meðan fólk fagnaði próflokum). Ansi hressandi það.

Samkvæmt mínum top secret innanbúðar heimildum úr 5 ára gömlu 6.bekkjar ráði í MR, er stefnan tekin á 5 ára reunion helgina 6-7 ágúst.

Hafi eitthver ykkar sem detta inn á þetta blogg verið að leita að gagnrýnni greiningu á helstu þjóðmálum eða beittri ádeilu á pólitík þá eruð þið augljóslega ekki á réttum stað... þá mæli ég frekar með blogginu þeirra Becker og Posner. Þeir eru aldagamlir prófessorar í hagfræði og lögfræði við Háskólann í Chicago.

Jæja, ætla að skella mér út í 18 gráðurnar og sól...

Thursday, May 19, 2005

Sumarplön

Í lok sumars hef ég 2 vikur í frí. Hvernig líst ykkur á þetta ferðaplan:

Reykjavík -> Istanbul > Madras, India -> Beijing -> Washington DC

Flugið myndi kosta um 150þ kall skv. Bootsn'all. Það er nú bara svipað og Flugleiðir að að bjóða fyrir fram og til baka flug til Íslands í sumar!!

NYTIMES

Mjög athyglisverð greinaröð á NY Times þessa dagana um stéttaskiptingu hérna í Bandaríkjunum. Mæli með að fólk tjékki á því.

Done diggidy done

Var að koma úr síðasta prófinu. Vei!

Wednesday, May 18, 2005

Dash blog

Síðasta prófið er á morgun þannig að ég hef ekki mikinn tíma til að blogga. Varð bara að prófa þetta nýja widget sem ég er með á Dashboardinu mínu (nýja stöffið frá Apple) sem sendir þessa færslu á bloggið.

Semsagt próf og skiladæmi á morgun og svo búskrús á einhverju skipi á föstudagskvöldið. Svo klára ég qualifying prófin 9 júní og þá verður farið til Boston og svo heim 13. júní.

Er að verða búinn að fylla húsið aftur, en allir meðleigjendurnir mínir eru að flytja út. Ploy heldur velli. Er kominn með þær Devaki og Linda, svo vantar bara að fylla síðasta herðbergið.

Monday, May 09, 2005

Vinir minir og halfur eg

Monday, May 02, 2005

Bolti

Kennarar rústuðu nemendum í fótbolta 10 - 5. Skýringin hlýtur að vera annað hvort að kennararnir hafi meira tíma til að æfa eða sú staðreynd að kennararnir sem spiluðu eru frá evrópu en nemendahópurinn meira samansettur af hafnaboltaspilandi könum, nema hvort tveggja sé.