Gettó fréttir í frí
Nú er maður kominn heim úr gettóinu þannig að ég veit ekkert hvað er að gerast þar. Ergo, Gettó Fréttir fara í frí þangað til útsendari þeirra kemur aftur í Gettóið.
Gleðilegt sumar!
Nú er maður kominn heim úr gettóinu þannig að ég veit ekkert hvað er að gerast þar. Ergo, Gettó Fréttir fara í frí þangað til útsendari þeirra kemur aftur í Gettóið.
Gleðilegt sumar!
Skilaði verkefninu í morgun þannig að mar er bara búinn. Að sjálfsögðu fór liðið beint á barinn kl. 10:30 í morgun og skelltum okkur svo í hádegismat í ekta Baltimore krabba -- fengum að vinna fyrir matinum þar..
Þá er það bara bjór og sumar og stemning næstu daga...
Fyrir fellow makka vini:
Skólinn minn mega kúl -- á þessari síðu er hægt að fá JHSPH Widget.

Næstu dagar fara í verkefni sem ég á að skila á fimmtudaginn. Verkefnið snýst um að meta áhrif mengunar á dánartíðni í tveimur borgum, New York og Los Angeles. Ég er með gögn um dánartíðni, magn ozons (O3) og smáagna (Particualte matter 10) og veðurfar í þessu tveimur borgum frá 1987 til 1994. Þetta er tengt verkefni sem prófessorar í deildinni minni hafa verið að vinna að.
Frekar svalt að mínu mati að vera kominn með alvöru gögn og geta skoðað áhrif mengunar á dánartíðni upp á eigin spítur. Þá er bara að skella á þetta log-línulegu Poisson aðhvarfslíkani og sjá hvað gerist...
Búinn með prófahluta Qualifying exams, nú er bara eftir að gera verkefni fyrir fimmtudaginn og þá er kominn tími á sumar og sól / bjór og stemmningu / og svo videre...
32 gráður og glampa sólskin í dag. Svo er blús hljómsveit að spila í Mount Vernon park (sem er hundrað metra frá húsinu mínu). En nei, ég þarf að vera að læra fyrir próf.
Tók mér samt frí á föstudagskvöldið -- við vorum með grill partý. Þið getið séð myndir hér og vonandi hér (fyrir seinni linkinn þurfið þið að búa til login og password)
Nú eru fjórir dagar eftir og 5 dagar þangað til ég kemst úr gettóinu og yfir í hámenninguna í Boston.
Ekkert að gerast í gettóinu núna, eða a.m.k. veit ég ekki af því (enda er skrifstofan mitt heimili þessa dagana). Það er svosem örugglega heilmikið að gerast hérna fyrir utan skólann...
Maður er djúpt sokkinn þegar maður gleymir hvaða kaffibolla af haugnum á borðinu maður er að drekka þessa stundina... Leikurinn spilast eins og hurðirnar og bíllinn.. ef maður er heppinn þá hittir maður á þann sem er heitur...
Vissu þið að fyrir hendingar Xn gildir
Xn -> X í L1 <=> Xn -> X in pr. og E|Xn| -> E|X| < óendanleikinn.