web page hit counter

Tuesday, September 20, 2005

Rumba

Eitthvað er ég lélegur að skrifa á þetta blogg. Hér er bara búið að vera djamm og stemning síðan ég kom þannig að maður er ekkert að taka tíma í þetta blogg. Á fimmtudaginn vorum við með okkar vikulega pot-luck matarboð -- þemað í þetta skiptið var Líbanon. Fengum fólk þaðan til að stjórna matreiðslunni (mmmm....) þannig að ég fékk bara frí frá matreiðslu í þetta skiptið.

Fór svo til DC um helgina og steig trylltan dans við brasilíska takta á Rumba Cafe. Hitti fullt af Íslendingum og fólk frá Perú og Póllandi og ... allavega virkilega mögnuð helgi.

Best að halda áfram með Hazard Evaluation of dinitrochickenwire (DNC).. stórhættulegur andskoti..

Wednesday, September 07, 2005

Back in da getto

Jæja, best að starta þessu bloggi eftir sumarið.

Snilldar sumar að baki enda ekki hægt að láta sér leiðast í 101 penthouse íbúðarinni hans Samma frænda á Baldursgötunni. Sakna Kaffibrennslunnar strax.

Héðan úti er allt gott að frétta nema hvað húsið sem ég bjó í síðasta vetur brann þann 7 júlí (í boði nokkurra heimilislausra einstaklinga sem kveiktu í ruslagámi fyrir utan) þannig að ég þurfti að byrja á því að flytja. Þetta mál er búið að vera tómt vesen en nú sér fyrir endan á því og nýja íbúðin er bara brillíant. Erum þar reyndar bara tvö, ég og Devaki, þannig að það er ekki eins mikið fjör og að vera fjögur í húsinu gamla en samt bara virkilega fínt.

Fór í bío á The Constant Gardener -- mæli með henni.

Meira seinna.