web page hit counter

Monday, October 31, 2005

Próflok

Prófin eru búin en ég er að komast að því að það þýðir ekki frí hérna megin. Er varla búinn að fá mér dropa af áfengi síðan prófin kláruðust. Tómt rugl.

Flickr.com er eitthvað ekki að leyfa mér að setja inn fleiri myndir, segja að ég sé búinn með kvótann (setti inn einhverjar 12 myndir). Hefur einhver lent í þessu? Hvað er hægt að gera?

Jæja, þreyta. Góða nótt.

Monday, October 24, 2005

Crunch time

Er í lokaprófum eins og er þannig að bloggið liggur á hakanum. Fer í eitt próf á morgun og tvö á miðvikudaginn. Það lítur hins vegar út fyrir gott partý um helgina enda bæði próflok og halloween helgi.

Bis spater...

Thursday, October 13, 2005

Veggir og húsgögn.

Hér eru hressandi myndir af veggjum og húsgögnum. Við erum með pot-luck í kvöld þannig að næsti skammtur verður vonandi meira spennandi.

Tuesday, October 11, 2005

Nýjir tímar

Nú hyllir í nýja tíma hér á Gettó-fréttum. Dígítal tíma. Myndir koma um leið og ég er búinn að læra á þetta dígítal apparat.

Friday, October 07, 2005

Update

Að undirlagi einnar very bored nurse á klakanum skelli ég smá update hérna. Skólinn gengur sinn vana gang og allt það. En það er kannski skemmtilegra að segja frá því sem gerist fyrir utan hann. "Baltimore -- party borgin" gæti jafnvel farið að hnika út "Murderville -- just below South Africa" slíkt hefur partý haldið verið. Svo kom Jói í heimsókn síðustu helgi sem að sjálfsögðu hafði í för með sér stanslaust útstáelsi og bara brillíant helgi.

Við (þ.e. ég og meðleigjandinn minn, Devaki) erum með pot-luck matarboð hérna á hverjum fimmtudegi. Fólk kemur með mat eða vín og við eldum saman, venjulega einhverstaðar milli 10 og 30 manns. Alveg brillíant. Vorum með þetta líka síðasta vetur (en þá í gamla húsinu mínu (sem brann í sumar)) á nánast hverjum fimmtudegi. Núna erum við ekki enn búin að sleppa úr fimmtudegi. Erum með mismunandi þema í hverri viku. Hingað til höfum við verið með eftirfarandi þema:

- Tælenskt, þ.á.m. voru kokkar með reynslu frá Tælandi
- Líbanskt, yfirkokkarnir voru líbanskir að sjálfsögðu.
- Kyrrahafsstæl, í tengslum við fjáröflun fyrir Katrina sem haldin var sama kvöld
- Mexíkóskt, eitthvað auðvelt af því að allir voru í miðsvetrarprófum
- Booze yo food, matur með einhverju áfengu. Þetta var í kvöld.. ótrúlegur matur. Þar á meðal voru maríeneraðir sveppir -- mæli hiklaust með þessari uppskrift. Auðvelt en magnað.
í fyrra vorum við líka með meira abstract þema eins og 'grænn matur' og 'kringlóttur matur' sem virkuðu vel. Það mætti halda áfram með svoleiðis en ég veit ekki hvort það eru margir aðrir litir en grænn sem gætu staðið undir heilu matarboði.